Vetraræfingar GKG 2021

Vetraræfingar hefjast í 4. janúar og standa til 11. júní.

 

Í GKG fer fram öflugt barna- unglinga- og afreksstarf. Við erum með frábæra aðstöðu í Íþróttamiðstöðinni og Kórnum.

Kylfingar í almennum hópum geta valið hvort þau æfi í Kórnum eða Íþróttamiðstöðinni, tvisvar í viku, eftir því sem hentar búsetu og tímasetningu æfinga. 

Keppnis- og framtíðarhópar æfa í Íþróttamiðstöðinni þrisvar í viku.

 

Vegna vetraræfinga:

Til þess að geta tekið þátt í vetraræfingum GKG fyrir 8-18 ára þarf að vera meðlimur í GKG og ganga frá félagsskráningu í GKG og á æfingar í Nóra Sjá verðskrá félagsaðildar hér sem gilda fyrir allt árið og einnig hér fyrir neðan ásamt æfingagjöldum. Við tökum jafnt á móti byrjendum sem lengra komnum börnum og unglingum.

Æfingatímabilið hjá okkur er tvískipt, þ.e. vetraræfingar eru frá jan-júní (þangað til skólum lýkur) og sumaræfingar frá júní til nóvember. 

Æfingagjald fyrir almenna hópa, óháð aldri, 2x í viku 4. janúar til 11.júní er kr. 26.500 (æfingagjald fyrir 14.júní – 19. nóvember er kr. 26.500)

Æfingagjald fyrir framtíðar/keppnis/mfl. hópa 4. janúar til 11.júní er kr. 32.500 (æfingagjald fyrir 14.júní – 19. nóvember er kr. 32.500)

Félagsgjald fyrir allt árið er eftir aldurshópum:

Börn 12 ára og yngri 18.500 kr.
13 ára til og með 18 ára 29.400 kr.
19 ára til og með 25 ára 61.500 kr.

Skráning í GKG og á æfingar í Nóra er hér.

 

Frekari upplýsingar

Spurt og svarað

Hvernig er valið í keppnis- og framtíðarhópa?

​Valið er í keppnis- og framtíðarhópa af þjálfurum. Miðað er við heilsárs ástundun og dugnað, þátttöku í GSÍ mótaröðum, Kristals mótaröð GKG, sem og forgjafarviðmið eftir aldri.

​

Hvenær eru vetrar- og sumaræfingar?

Vetraræfingatímabilið eru frá byrjun janúar þangað til skólum lýkur í kringum fyrstu til aðra viku í júní. Í kjölfarið taka við sumaræfingar og standa þær framyfir miðjan nóvember.

​

Getur hver sem er komið á æfingar hjá GKG?​

Til þess að taka þátt á æfingum hjá GKG þarf að vera félagi í klúbbnum.​ Hver sem er getur sótt um félagsaðild hjá GKG.

​

Hvað kostar að æfa hjá GKG?

Gjöldin eru tvískipt, annars vegar æfingagjöld og hins vegar félagsgjöld, enda er nokkuð um það að börn og unglingar eru ekki á æfingum en eru í GKG til að geta leikið á völlunum og tekið þátt í mótum.

Verðskrána og upplýsingar um félagsgjöldin er að finna hér.

​

Er hægt að nýta iðkendastyrki bæjarfélaga til þess að niðurgreiða æfinga- og félagsgjöld?

​Já, það er svo sannarlega hægt að nýta iðkendastyrkina til niðurgreiðslu æfinga- og félagsgjalda.

Kópavogur: Hér getur þú farið í gegnum skráningarkerfið.

Garðabær: Til að nýta hvatapeninga þá skoðið þið upplýsingarnar hér.

​

Hvernig er haldið utan um samskipti og dagskrá?

GKG notar Sportabler, sem er snjallforrit til að halda utan um dagskrá og samskipti æfingahópanna. Sportabler, sem er íslenskt vef- og snjallsímaforrti einfaldar alla viðburðastjórnun, samskipti og utanumhald íþróttastarfsins. Iðkendur fá t.d. áminningu fyrir hverja æfingu og viðburð á vegum íþróttafélagsins.

Sjá leiðbeiningar fyrir foreldra og iðkendur hvernig á að skrá sig í Sportabler hér.

​

Hvernig er hópunum skipt á æfingar?

Hópunum er skipt upp eftir aldri sem og getustigi. Hóparnir eru þá eftirfarandi: 8-10 ára, 11-12 ára og 13-15 ár og 16-18 ára.

Mismunandi áherslur eru þá lagðar á þau atriði sem lögð eru fyrir krakkana og er eins og kemur fram hér að ofan ákveðið eftir þátttöku í mótum og þess háttar hvort þau séu svo skráð í keppnishópa eða almenna hópa o.s.frv.

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um æfingaskipulag.

 

Ef þú vilt afla þér meiri upplýsinga er skiptingu og áherslum gerð góð skil hér.