Simmi að spila vel

Sigmundur Einar er að spila alveg ágætis golf þrátt fyrir erfiðar aðstæður á Íslandsmótinu í golfi.

 Hann fékk til að mynda 2 fugla í röð á 12. og 13. holu. Hann er sem stendur á +1 höggi yfir pari með 6 […]

By |28.07.2006|Categories: Óflokkað|

Rástímar okkar manna í dag

Hér fyrir neðan má sjá rástíma okkar manna í dag á 2 keppnisdegi.

Við viljum hvetja alla félagsmenn GKG að kíkja við og sýna okkar afreksmönnum stuðning.

By |28.07.2006|Categories: Óflokkað|

Sigmundur og Úlfar leiða Íslandsmótið

Sigmundur Einar Másson og Úlfar Jónsson leiða Íslandsmótið í höggleik sem fer fram á Urriðavatnsvelli í Heiðmörk.

Mótsumgjörðin er öll hin glæsilegasta og hvetjum við félagsmenn GKG til að fara og fylgjast með okkar bestu kylfingum.

Dagurinn var blautur framan af en þegar líða fór á stytti upp og var komið hið fínasta veður eftir hádegið.

Sigmundur Einar endaði á -1 höggi undir pari og er í fyrsta sæti.

Úlfar Jónsson kemur þar á eftir í 2.-3. sæti á +2 höggum yfir pari að loknum fyrsta keppnisdegi.

Staða okkar manna er annars þessi eftir fyrsta keppnisdag:

By |27.07.2006|Categories: Óflokkað|

Simmi efstur og Haukur Már setti niður örn

Sigmundur Einar Másson er efstur á -1 höggi undir pari á Íslandsmótinu í Höggleik sem hófst á Urriðavatnsvelli hjá Oddi í morgun. Sigmundur hefur spilað á parinu auk þess að hafa fengið 1 fugl á þeirri 12. en hann hóf leik á […]

By |27.07.2006|Categories: Óflokkað|

Alex Freyr íslandsmeistari unglinga

Grein tekin af www.kylfingur.is

Alex Freyr Gunnarsson úr GKG varð íslandsmeistari unglinga í holukeppni sem lauk um síðustu helgi á Vífilsstaðavelli. Hann hefur verið að gera það gott í golfinu í sumar, er í öðru sæti á KB-banka mótaröð unglinga og er auk þess nýbakaður klúbbmeistari GKG í flokki 13 ára og yngri sem hann vann með miklum yfirburðum.
Alex Freyr fæddist þann 4. janúar í Þýskalandi árið 1993. Öll fjölskyldan spilar golf en hann á tvo bræður. Hann var ekki nema 6 ára þegar hann byrjaði í golfinu, fyrst í GR og undanfarin tvö ár í GKG en hann vann sinn flokk í GKG annað árið í röð í vikunni.

By |26.07.2006|Categories: Óflokkað|

Val á kvennasveit GKG 2006

Þann 11. ágúst hefst sveitakeppni GSÍ í kvennaflokki á Hvaleyrarvelli hjá GK þar sem verður leikið í 1. og 2. deild. Sérstök reglugerð er um sveitakeppni GSÍ í kvennaflokki.

By |26.07.2006|Categories: Óflokkað|

Íslandsmót unglinga í holukeppni – úrslit

 Íslandsmóti unglinga í holukeppni lauk í gær. Bliðskapa veður var alla dagana og var golfið eftir því. Kylfingarnir ungu sýndu sínar bestu hliðar og voru mörg glæsileg högg sleginn í mótinu. Hér að neðan má sjá úrslit.

Mótstjórn vill þakka kylfingum fyrir drengilega keppni og góða framkomu í mótinu. Enn fremur viljum við þakka félagsmönnum GKG fyrir að sýna þolinmæði og skilning vegna lokunar á vellinum.

By |24.07.2006|Categories: Óflokkað|

Holukeppnin hefst í dag

Fyrsta umferð Íslandsmót unglinga í holukeppni er í þann mund að hefjast á Vífilsstaðavelli. Í gær var skorið niður í 16 í hverjum flokki en þeir leika holukeppni í dag. Athygli vakti að Guðni Fannar Carrico sem er búinn að vera einn af sterkustu kylfingunum í 13 ára og yngri […]

By |22.07.2006|Categories: Óflokkað|

Rástímar – Íslandsmót í Holukeppni

ÍSLANDSMÓTIÐ Í HOLUKEPPNI UNGLINGA 2006
KB Bankamótaröð unglinga 21. – 23. júlí 2006
GOLFKLÚBBUR KÓPAVOGS OG GARÐABÆJAR

Rástímar fyrir morgundaginn 22.júlí.

Athugið að samkvæmt keppnisskilmálum að ef tveir leikmenn eru jafnir skal fara eftir seinni 9 holum ef það er jafnt þá skal varpa hlutkesti.

By |21.07.2006|Categories: Óflokkað|

Go to Top