Kjartan og Eygló leiða

Meistaraflokkarnir hófu leik í dag og komu mörg skor undir pari enda veður eins og best verður á kosið. Kjartan Dór Kjartansson lék best í karlaflokki en hann lauk leik á 67 höggum eða 3 undir pari. Kjartan var öryggið uppmálað á […]

By |05.07.2006|Categories: Óflokkað|

Alex Freyr í 4. sæti í heimsmeistaramóti

Helgina 24-25 júní s.l. fór fram í Limerick á Írlandi Heimsmeistaramót unglinga í samkvæmisdönsum.
Alex Freyr Gunnarsson einn af ungu kylfingunum í GKG og einn sá sterkasti á KB banka mótaröðinni ásamt dansfélaga sínum Rögnu Björk Bernburg úr Dansfélaginu Hvönn kepptu fyrir Íslands hönd í þessari 10 dansa keppni, en þau eru margfaldir Íslandsmeistarar liðinna ára.

By |03.07.2006|Categories: Óflokkað|

Niðjamót GKG – Úrslit

Niðjamót GKG fór fram laugardaginn 1. júlí og gekk svo vel sem verða má. Tveir voru saman í liði þar sem annar var afkomandi hins og var leikin Greensome punktakeppni. Fjörutíu lið mættu til leiks sem er helmingsfjölgun frá fyrsta mótinu í fyrra. Ágóði af mótinu rennur óskiptur í ferðasjóð […]

By |01.07.2006|Categories: Óflokkað|

Nýtt þátttökumet í Meistaramóti GKG

Annað árið í röð eru félagsmenn GKG að setja met í þátttöku á Meistaramótinu. Núna hafa 261 félagsmaður skráð sig til leiks og hafa aldrei verið fleiri sem hafa tekið þátt. Fyrra metið var slegið í fyrra þegar 255 voru skráðir og […]

By |30.06.2006|Categories: Óflokkað|

Dagskrá Öldunganefndar

    Dagskrá Öldunganefndar GKG

Næsta á dagskrá er 9 holu mót sunnudaginn 9. júlí. Ræsing frá kl. 9,00. Kr. 1000- kaffi innifalið. Auglýst á töflu síðar.
30. júlí – sunnudag, verður farið á Hólmsvöll í Leiru. Einkabílar. Ræsing frá kl. 9,00. Skráningarblað […]
By |29.06.2006|Categories: Óflokkað|

Æfingahópur öldunga

Á kynningarfundi með Brynjari Eldon Geirssyni og væntalegum liðsmönnum öldungasveita GKG föstudaginn 9. júní, var ákveðið að fyrsta æfing yrði föstudaginn 23. júní.
 
Framvegis verða æfingar á föstudögum.
Karlar kl. 17,00
Konur kl.18,00
Hugsanlegt er að að hópurinn spili saman eftir æfingar á föstudögum 
Á undirbúningstímanum fá allir þátttakendur boltakort hjá móttöku klúbbsins gegn skilagjaldi kr. […]
By |29.06.2006|Categories: Óflokkað|

Simmi líklegastur

Skv. áliti lesenda GKG.IS er Sigmundur Einar Másson talinn líklegastur til afreka á KB Banka mótaröðinni í sumar. 34,5% lesenda telur að Sigmundur nái bestum árangri í mótaröðinni í sumar. 27,7% velja Ottó Sigurðsson, en þeir tveir bera af í áliti lesenda. Björn Halldórsson er að mati 6,2% lesenda talinn líklegur til að ná góðum árangri. Aðrir voru með innan við 5% af greiddum atkvæðum.
Með því að ýta á "Lesa meira" getur þú séð niðurstöðu könnunarinnar í heild.

By |27.06.2006|Categories: Óflokkað|

Go to Top